Samþykktir Dómarafélags Íslands
Heiti félagsins
1. gr.
Félagið heitir Dómarafélag Íslands.
Tilgangur félagsins
2. gr.
Tilgangur félagsins er:
a) að standa vörð um sjálfstæði dómara og dómstóla,
b) að stuðla að velferð dómarastéttarinnar og vera málsvari hennar, m.a. í kjaramálum,
c) að vera ráðgefandi gagnvart ríkisstjórn og Alþingi um nýmæli í löggjöf, sem vænta má að snerti verksvið félagsmanna,
d) að vera dómstólasýslunni til ráðgjafar, m.a. við setningu reglna sem lúta að starfsskilyrðum dómara og úrbótum í störfum dómstóla,
e) að taka þátt í alþjóðasamstarfi dómarafélaga, m.a. um sjálfstæði dómstóla og störf dómara, og kynna félagsmönnum alþjóðlegar samþykktir um efnið,
f) að vinna að samþykkt siðareglna dómara og koma á siðaráði,
g) að hlynna að fræðimennsku um lögfræðileg efni í samstarfi við önnur félög lögfræðinga.
Félagsaðild
3. gr.
Félagar eru hæstaréttardómarar, landsréttardómarar og héraðsdómarar.
Íslenskir dómarar við alþjóðlega dómstóla geta sótt um inngöngu í félagið.
Löglærðir aðstoðarmenn dómara, þ. á m. aðstoðarmenn landsréttardómara og hæstaréttardómara, svo og þeir sem settir eru dómarar geta sótt um inngöngu í félagið.
Þeir félagsmenn, sem látið hafa af störfum fyrir aldurs sakir eða sakir heilsubrests, teljast áfram félagsmenn nema þeir óski eftir að víkja úr félaginu.
Allir félagsmenn eiga jöfn réttindi og bera jafnar skyldur. Löglærðir aðstoðarmenn dómara og settir dómarar eiga þó ekki atkvæðisrétt.
Félagsfundir
4. gr.
Félagsfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins.
Félagsfundi, aðra en aðalfundi skal halda þegar stjórn félagsins telur ástæðu til, samkvæmt ályktun félagsfundar, eða þegar minnst 20 félagsmenn óska þess skriflega, enda komi fram í beiðninni hvers vegna þeir æskja fundar. Félagsfund skal halda innan mánaðar frá því að lögmæt ósk um félagsfund er komin fram. Félagsfund má sækja með fjarfundabúnaði og skal stjórn hlutast til um að slíkt sé félagsmönnum gert tæknilega kleift.
Á félagsfundi og aðalfundi skal kjósa fundarstjóra og ritara. Fundarstjóri rannsakar í fundarbyrjun hvort löglega hafi verið til fundarins boðað og lýsir að því loknu hvort svo sé.
Afl atkvæða ræður úrslitum á félagsfundum og aðalfundi nema mælt sé fyrir um annað í samþykktum þessum. Framkvæmd atkvæðagreiðslu um málefni á félagsfundi fer eftir ákvörðun fundarstjóra. Atkvæðagreiðsla um málefni á félagsfundi og aðalfundi skal þó vera skrifleg ef óskað er.
Aðalfundur
5. gr.
Aðalfund félagsins skal halda á fyrsta ársfjórðungi hvers árs. Til aðalfundar skal boða með rafrænum hætti með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara. Aðalfund má sækja með fjarfundabúnaði og skal stjórn hlutast til um að slíkt sé félagsmönnum gert tæknilega kleift.
Stjórn félagsins skal kjörin á aðalfundi. Kjörtímabil stjórnar er tvö ár. Í aðalfundarboði skal tilkynnt hvort stjórn gefur kost á sér til endurkjörs.
Á aðalfundi ber stjórninni að flytja skýrslu um störf sín og leggja fram ársreikning félagsins til samþykktar. Aðalfundurinn fjallar einnig um önnur mál, sem um er getið í fundarboði, eða upp kunna að vera borin af fundarmönnum.
Á aðalfundi skal kjósa til eins árs einn skoðunarmann ársreiknings félagsins úr hópi félagsmanna. Þá skal kjósa þrjá fulltrúa í siðaráð til þriggja ára í senn, sbr. 10. gr.
Stjórnarkjör
6. gr.
Stjórn Dómarafélags Íslands skipa fimm menn, formaður og fjórir meðstjórnendur kjörnir á aðalfundi. Kjósa skal að lágmarki einn fulltrúa hvers dómstigs sem aðalmann í stjórn, að því gefnu að framboð berist frá dómara á hverju dómstigi fyrir sig. Við kosninguna skal fyrst kosinn formaður úr hópi allra félagsmanna sem falla undir 1. mgr. 3. gr. Því næst skal kosinn í stjórn einn dómari úr hópi hæstaréttardómara sem gefið hafa kost sér. Að því loknu skal sambærilegur háttur hafður á um kjör eins stjórnarmanns úr hópi landsréttardómara. Því næst skal sami háttur hafður á um kjör eins stjórnarmanns úr hópi héraðsdómara. Fjórði meðstjórnandi og tveir varamenn skulu kjörnir úr hópi félagsmanna óháð starfsvettvangi.
Stjórnarmenn verða ekki endurkjörnir þegar þeir hafa setið í aðalstjórn samfellt í átta ár. Þó má kjósa stjórnarmann, er þannig háttar til um, formann félagsins og kemur fyrri stjórnarseta hans þá ekki til frádráttar. Engar hömlur eru á endurkosningu varamanna.
Framboð til formanns og stjórnar félagsins skal tilkynna til stjórnar félagsins eigi síðar en sjö dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ber stjórn að tilkynna félagsmönnum um framboð eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn.
Atkvæðisrétt hafa einungis þeir félagsmenn sem staddir eru á aðalfundi. Félagsmaður sem tengist fundi með fjarfundabúnaði telst staddur á aðalfundi í skilningi þessara samþykkta.
Verkefni stjórnar
7. gr.
Formaður stjórnar er kjörinn sérstaklega á aðalfundi. Stjórn félagsins skiptir að öðru leyti með sér verkum. Stjórn er ákvörðunarbær þegar meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum.
Ársreikningur
8. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Skoðunarmaður félagsins skal yfirfara reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár. Skoðunarmaður staðfestir yfirferð sína á reikningum félagsins með undirskrift sinni og dagsetningu. Hafi hann athugasemdir við reikninga félagsins skal slíkum athugasemdum beint til stjórnar félagsins sem kynnir þær fyrir aðalfundi félagsins ef við á.
Skoðunarmaður skal kjörinn á aðalfundi úr hópi félagsmanna.
Árgjald
9. gr.
Félagsmenn greiða árgjald til félagsins eftir ákvörðun aðalfundar hverju sinni.
Kostnað við störf félagsins skal greiða úr félagssjóði. Þeir félagsmenn sem látið hafa af störfum fyrir aldurs sakir eða sakir heilsubrests greiða hálft árgjald. Sama á við um löglærða aðstoðarmenn dómara og setta dómara sem ganga í félagið.
Siðaráð dómara
10. gr.
Í siðaráð skal kjósa þrjá fulltrúa á aðalfundi félagsins til þriggja ára í senn.
Hlutverk siðaráðs er að kynna siðareglur dómara og standa fyrir umræðu meðal dómara um siðferðileg viðfangsefni. Siðaráð kveður ekki upp úrskurði um ætluð brot einstakra dómara á siðareglum.
Breytingar á samþykktum
11. gr.
Samþykktum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi og þarf til þess samþykki a.m.k. tveggja þriðju hluta fundarmanna.
Gildistaka
12. gr.
Samþykktir þessar öðlast þegar gildi. Falla samtímis úr gildi eldri samþykktir félagsins, sem upphaflega öðluðust gildi 1. júlí 1992, en breytt hafði verið 21. nóvember 2014, 24. nóvember 2017, 8. september 2022 og 2. febrúar 2024. Ákvæði 5. gr. um kjörtímabil stjórnar verður þó ekki virkt fyrr en á aðalfundi félagsins 2026.
Samþykkt á aðalfundi Dómarafélags Íslands 14. mars 2025.