Aðalfundur 2017

Aðalfundur Dómarafélags Íslands verður haldinn í Safnahúsinu  við Hverfisgötu 15, Reykjavík, föstudaginn 24. nóvember 2017.

Dagskrá fundarins er að finna hér fyrir neðan.

D A G S K R Á

Kl. 14:00         Fundarsetning og ávarp: Skúli Magnússon, formaður Dómarafélags Íslands

Ávarp dómsmálaráðherra

Ávarp formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar

Ávarp formanns LMFÍ

 

Kl. 15:00          Kaffi

 

Kl. 15.20          Siðareglur dómara – Kynning á drögum, umræður og atkvæðagreiðsla.

 

Kl. 16:30          Aðalfundarstörf:

  1. a) skýrsla stjórnar
  2. b) reikningar félagsins
  3. c) ákvörðun árgjalds
  4. d) kosning stjórnar og varamanna
  5. e) kosning endurskoðanda
  6. f) önnur mál

 

Athygli er vakin á 3. og 4. mgr. 4. gr. laga félagsins sem hljóðar svo: Framboð til formanns og stjórnar félagsins skal tilkynna til stjórnar félagsins eigi síðar en sjö dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ber stjórn að tilkynna félagsmönnum um framboð eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn. [/] Atkvæðisrétt hafa einungis þeir félagsmenn sem staddir eru á aðalfundi.

 

Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. laga félagsins er tilkynnt að Skúli Magnússon formaður gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Að öðru leyti gefur sitjandi stjórn kost á sér til endurkjörs: Hildur Briem, Karl Axelsson, Sandra Baldvinsdóttir og Ingibjörg Þorsteindóttir.

 

Kl. 17:00          Fundarslit – Léttar veitingar

 

Tilkynningu um þátttöku á fundinn skal senda eigi síðar en miðvikudaginn 20. nóvember á netfangið skuli@domstolar.is.