Aðalfundur 2016

Aðalfundur Dómarafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 25. nóvember 2016, í Safnahúsinu (áður Þjóðmenningarhúsið), Hverfisgötu 15, Reykjavík, og hefst kl. 13:00.

Dagskrá fundarins er að finna hér fyrir neðan.

 Dagskrá:

Kl. 13:00       Fundarsetning: Skúli Magnússon, formaður DÍ.

Ávarp ráðherra.

Ávarp formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.

Ávarp formanns LMFÍ.

 

Kl. 13:50          Hlé

 

Kl. 14:00        Framsaga: „Traust á íslenskum dómstólum“.

Daði Heiðar Kristinsson, lögfræðingur og félagsfræðingur.

 

Kl. 15:00          Pallborðsumræður í framhaldi af framsögu.

 

Kl. 16:00          Kaffihlé.

 

Kl. 16:15          Aðalfundarstörf:

  1.          skýrsla stjórnar
  2.         reikningar félagsins
  3.         ákvörðun árgjalds
  4.         kosning stjórnar og varamanna
  5.         kosning endurskoðanda
  6.         sjóður alþjóðasamtaka dómara til styrktar bágstöddum (tyrkneskum) dómurum
  7.         kynning á vinnu við mótun siðareglna dómara
  8.        önnur mál

 

Kl. 17:00          Fundarslit: Ingibjörg Þorsteinsdóttir varaformaður DÍ.

 

Að loknum  fundi verður boðið upp á léttar veitingar í veitingasal á 2. hæð.

 

Athygli er vakin á 3. og 4. mgr. 4. gr. laga félagsins sem hljóðar svo:

Framboð til formanns og stjórnar félagsins skal tilkynna til stjórnar félagsins eigi síðar en sjö dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ber stjórn að tilkynna félagsmönnum um framboð eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn.

Atkvæðisrétt hafa einungis þeir félagsmenn sem staddir eru á aðalfundi.

 

Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. laga félagsins er tilkynnt að Skúli Magnússon formaður gefur kost á sér til endurkjörs og stjórnarmennirnir Hildur Briem, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Karl Axelsson og Sandra Baldvinsdóttir.

 

Tilkynningu um þátttöku á fundinn skal senda eigi síðar en miðvikudaginn 23. nóvember með svari á þennan póst, netfangið sandra@domstolar.is.